Fréttir
31. janúar 2023Ísland beitir einangrunarvist í gæsluvarðhaldi óhóflega og brýtur þannig m.a. gegn samningi Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu með alvarlegum afleiðingum fyrir sakborninga og rétt þeirra til sanngjarnra réttarhalda. Þetta eru niðurstöður nýrrar skýrslu Amnesty International, „Waking up to nothing: Harmful and unjustified use of pre-trial solitary confinement in Iceland“.
Skorað er á íslensk stjórnvöld, sem nú gegna formennsku í Evrópuráðinu, að skuldbinda sig til að koma á mikilvægum og tafarlausum umbótum.
Óhófleg beiting
Árið 2021 sættu sex af hverjum tíu allra gæsluvarðhaldsfanga einangrunarvist á Íslandi.
„Íslensk stjórnvöld hafa um árabil verið meðvituð um óhóflega beitingu einangrunarvistar hér á landi og skaðsemi hennar. Engu að síður voru að meðaltali rúmlega 80 einstaklingar ár hvert, frá 2012 til 2021, þeirra á meðal börn og einstaklingar með þroskahömlun, læstir einir í klefum í rúmlega 22 klukkustundir á sólarhring.“
Simon Crowther, lögfræðingur hjá alþjóðaskrifstofu Amnesty International.
Enda þótt einangrunarvist sé ekki með öllu bönnuð samkvæmt alþjóðalögum þá kveða þau á um að beiting hennar skuli heyra til algjörra undantekninga, hún skuli vara í sem skemmstan tíma og ávallt vera háð ströngum skilyrðum. Engin þessara atriða eru virt á Íslandi þar sem kröfur lögreglu um einangrunarvist í gæsluvarðhaldi eru nánast ávallt samþykktar af dómurum. Samkvæmt rannsókn Amnesty International samþykktu dómarar kröfur ákæruvaldsins um einangrunarvist í gæsluvarðhaldi í 99% tilvika á árunum 2016 til 2018. Rannsókn Amnesty International gefur til kynna að lítið hafi breyst frá árinu 2018.
Í skýrslu Amnesty International kemur fram að enda þótt hið illræmda Guðmundar- og Geirfinnsmál hafi leitt til breyttrar stefnu um beitingu einangrunarvistunar til lengri tíma í gæsluvarðhaldi hér á landi, þá hafa ekki nægar úrbætur átt sér stað. Á tíu ára tímabili, frá 2012 til 2021, sættu 99 einstaklingar langvarandi einangrunarvist þ.e. lengur en í 15 daga. Það er skýrt brot á alþjóðlegu banni gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu.
„Stjórnvöld verða að horfast í augu við staðreyndir. Íslensk stjórnvöld brjóta gegn alþjóðlegum skuldbindingum sínum á sama tíma og Ísland gegnir formennsku stofnunar sem ber ábyrgð á að koma í veg fyrir og útrýma pyndingum í Evrópu. Ísland verður að gera marktækar breytingar til að sporna gegn pyndingum og annarri ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu.“
Simon Crowther, lögfræðingur hjá alþjóðaskrifstofu Amnesty International.
Réttlæting á beitingu
Megin réttlæting yfirvalda á beitingu einangrunarvistar í gæsluvarðhaldi er verndun rannsóknarhagsmuna. Amnesty International lítur svo á að aldrei skuli beita einangrunarvist til þess eins að vernda rannsóknarhagsmuni lögreglu enda stríðir það gegn alþjóðlegri mannréttindalöggjöf um nauðsyn og meðalhóf. Önnur og vægari úrræði eru tiltæk til að gæta rannsóknarhagsmuna, eins og að aðskilja gæsluvarðhaldsfanga frá tilteknum einstaklingum og takmarka símanotkun.
Lögfræðingar sem Amnesty International ræddi við sögðu að skaðleg áhrif einangrunarvistar á skjólstæðinga sína væru skýr: „Það er augljóst að lögregla beitir einangrun til að setja þrýsting á grunaða einstaklinga og ná því fram sem hún ætlar sér.“
Erfitt er að ákvarða með fullri vissu hvort lögregla og saksóknarar beiti einangrunarvist vísvitandi í þeim tilgangi að beita þrýstingi. Það er hins vegar enginn vafi á því að einangrunarvist skapar ákveðinn þrýsting. Ef einangrunarvist er beitt í þeim eina tilgangi að ná fram upplýsingum eða játningu telst það til pyndinga og annarrar grimmilegrar meðferðar.
Börn og fólk með fötlun
Skortur er á varnöglum til verndar börnum og einstaklingum í viðkvæmri stöðu sem eru í mikilli hættu á að bera skaða af einangrunarvist, s.s. einstaklingar með líkamlega fötlun, geðraskanir eða þroskahömlun. Þetta á einnig við um einstaklinga með sumar taugaþroskaraskanir.
Viðtöl rannsakenda Amnesty International við lögfræðinga og gæsluvarðhaldsfanga sýndu fram á fjölda tilfella þar sem einangrunarvist var beitt gegn einstaklingum þrátt fyrir mikla hættu á skaða. Það gengur í berhögg við alþjóðlegar skuldbindingar Íslands. Einn lögfræðingur upplýsti samtökin um að skjólstæðingur hans hafi verið svo þjáður að „honum voru gefin lyf til að róa hann“.
Fyrrum gæsluvarðhaldsfangi sem sat í einangrun sagði eftirfarandi: „Ég er með áráttu- og þráhyggjuröskun og það er mjög erfitt fyrir mig að vera einn með hugsunum mínum… ég held að enginn [í geðheilsuteyminu] viti að ég sé með þetta.“
Í samræmi við alþjóðlegt bann gegn pyndingum og annarri illri meðferð ætti aldrei að hafa fólk í viðkvæmri stöðu í einangrunarvist, svo sem fólk með fötlun, geðraskanir eða taugaþroskaraskanir, þar sem einkenni gætu versnað við einangrun sem er því líkleg til að valda skaða.
Á árunum 2012 til 2021 hafa tíu börn sætt einangrun í gæsluvarðhaldi á Íslandi. Þegar einangrunarvist er beitt gegn börnum brjóta íslensk stjórnvöld gegn alþjóðlegu banni við pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu.
Áhrif einangrunarvistar
Fjöldi rannsókna bendir til þess að einangrunarvist hafi alvarleg heilsufarsáhrif, bæði líkamleg og andleg. Einkenni fela m.a. í sér svefnleysi, rugling, ofsjónir og geðrof. Neikvæð heilsufarsáhrif geta komið í ljós eftir aðeins örfáa daga í einangrun. Sjálfsvígshætta og sjálfsskaði eykst á fyrstu tveimur vikum einangrunarvistar. Hætta á heilsutjóni eykst með degi hverjum í einangrun.
„Íslandsdeild Amnesty International er gríðarlega stolt af þeirri vinnu sem deildin hefur lagt í gerð þessarar skýrslu. Það er mikilvægt að horft sé gagnrýnum augum á stöðu mannréttindamála hér á landi. Niðurstöður skýrslunnar eru sláandi og mikilvægt að íslensk stjórnvöld taki tilmælum Amnesty International alvarlega. Íslensk stjórnvöld eru ekki undanskilin skoðun og gagnrýni, sérstaklega ekki þegar kemur að því hvernig komið er fram við fólk í viðkvæmri stöðu.“
Anna Lúðvíksdóttir, framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Amnesty International.
„Misbeiting einangrunarvistar er gríðarlega umfangsmikil á Íslandi, meðal annars á börnum og einstaklingum með fötlun. Íslensk stjórnvöld verða að tryggja viðeigandi úrbætur á hegningarlögum og að bæta menninguna í réttarkerfinu til að binda enda á mannréttindabrot. Til eru önnur úrræði sem ætti að beita frekar“,
Simon Crowther, lögfræðingur hjá alþjóðaskrifstofu Amnesty International.
Amnesty International fagnar þeirri vinnu sem hafin er hjá stjórnvöldum við endurskoðun á lögum um meðferð sakamála, sérstaklega er varðar beitingu einangrunarvistar barna. Um leið hvetja samtökin stjórnvöld að standa við alþjóðlegar mannréttindaskuldbindingar sínar og tryggja að hætt verði að beita einangrunarvist í gæsluvarðhaldi eingöngu á grundvelli rannsóknarhagsmuna.
Nöfn viðmælenda í rannsókn Amnesty International er hvorki getið í skýrslunni né fréttatilkynningunni.
Lestu einnig
Þú ætlar að styðja og .
Skrifaðu undir og Amnesty á Íslandi sendir viðeigandi aðilum bréf í þínu nafni. Engar aðrar persónuupplýsingar en nafn þitt munu fylgja bréfinu á viðkomandi stjórnvöld.
Með því að skrifa undir málin samþykkir þú skilmála Íslandsdeildar Amnesty International um undirskriftir og persónuverndarstefnu