Góðar fréttir
22. mars 2019Árangur hefur náðst í tveimur málum herferðar okkar Bréf til bjargar lífi 2018. Annars vegar hafa orðið framfarir í máli frá Brasilíu og hins vegar í máli frá Úkraínu.
Framfaraskref í rannsókn á morði Marielle Franco
Lögreglan í Brasilíu hefur handtekið tvo karlmenn í Ríó De Janeiro fyrir morðið á mannréttindafrömuðinum Marielle Franco og bílstjóra hennar Anderson Gomes þann 14. mars 2018.
„Nú er liðið um ár síðan Marielle Franco var myrt í grimmilegri árás sem hafði alvarleg áhrif á þau samfélög sem hún barðist fyrir. Morðið á Marielle var augljóst tilræði til að þagga niður í hugrakkri baráttukonu fyrir mannréttindum sem hafði helgað líf sitt baráttu fyrir málstað kvenna, hinsegin fólks og ungs svarts fólks í fátækrahverfum Ríó,“ segir Erika Guevara-Rosas framkvæmdastjóri Amnesty International Ameríkusvæðisins.
Lestu einnig
Þú ætlar að styðja og .
Skrifaðu undir og Amnesty á Íslandi sendir viðeigandi aðilum bréf í þínu nafni. Engar aðrar persónuupplýsingar en nafn þitt munu fylgja bréfinu á viðkomandi stjórnvöld.
Með því að skrifa undir málin samþykkir þú skilmála Íslandsdeildar Amnesty International um undirskriftir og persónuverndarstefnu